20. ágúst 2010

Blómabóndi

Síðasta vetur þegar það var enn smá snjór þá prófaði ég að gefa fuglunum að borða í garðinum hjá okkur. Ég keypti poka af fuglafræi og t.d. prófaði ég að henda smá af því við tröppurnar hjá okkur þar sem hangir smá blómaker fram af handriðinu. Fuglarnir voru lítið æstir í það og það var svo ekki fyrr en í vor að ég tók eftir því að það var allt fullt af grænum spírum í blómakerinu.

Ég tók svo þessar spírur og setti á góðan stað í garðinum. Síðan þá hef ég lítið sem ekkert haft fyrir þeim, nema hvað tvisvar reitti ég eitthvað illgresi frá sem var farið að skyggja á, ég gaf þeim ekki einu sinni áburð. En núna eru sprottin upp þessi fínu sólblóm, sem hafa alfarið sprottið utandyra, mig hefði ekki grunað að það væri hægt.

En þetta er samt pínu svekkjandi, þetta var jú fuglafræ hefðu ekki átt að spretta fuglar?

16. ágúst 2010

Eldur í Hörpu 2.0

Þetta er tekið sirka 4 mínútum eftir að ég tók fyrst eftir eldinum.

Var fyrir tilviljun á labbi fyrir utan vinnuna þegar það var skyndilega kviknað í tónlistarhúsinu. Þetta var alveg sæmilegasti eldur á tímabili og mildi að ekki fór verr. T.d. voru menn að forða sér frá eldinum með því að klifra í gluggagrindunum. Eldurinn byrjaði í miðjunni á vinstri hluta hússins og fór síðan mjög hratt út til beggja hliða.

Ég hringdi í 112 til að láta vita en það svaraði ekki (væntanlega vegna álags) þá var klukkan 10:41. Myndin hér fyrir ofan er tekin kl 10:45, fyrsti slökkviliðsbíllinn kom 10:48 (en manni fannst það lengra) og svo kom annar kl 10:53, þá var eldurinn að mestu slokknaður.

Aðal lærdómurinn í þessu öllu saman er svo auðvitað sá að ég verð að fá mér síma með betri myndavél!

18. júní 2010

Villibók vantar eiganda

Áðan laumaðist ég út í náttúruna með GPS tæki, myndavél og bók í poka.

Og núna er bók þarna úti sem bíður eftir því að einhver finni hana. Hún er í litlum plastpoka sem er ætlað að verja hana fyrir veðri og vindum og á plastpokanum hvílir steinn svo hún fjúki nú ekki burt. Hún er falin á nákvæmlega þessum stað og hver sem er getur farið og fundið hana. (og eignast hana)

Þetta er klassísk bók í kiljuformi, söguleg novella sem byggir að hluta til á reynslu höfundar.

Bókin er annars á mjög aðgengilegum stað, en ekki alveg í alfaraleið, það gæti þurft að leita pínu en hún er geymd nákvæmlega eins og sést á myndinni, svona skildi ég við hana.

Ef þú finnur bókina máttu endilega láta mig vita svo ég geti tilkynnt það hérna í blogginu svo enginn fari nú fýluferð. Til að fá nákvæma staðsetningu þá má t.d. sækja þessa KMZ skrá eða notast við hnitin N 64.248377 W021.023885 sem er nákvæmasta staðsetningin sem ég hef.

Ef einhverjir fleiri vilja sleppa bókunum sínum svona lausum þá mæli ég með:
  • að það sé bók sem þú hefur klárað að lesa
  • að þú merkir bókina með nafni og tölvupósti
  • að þú skrifir eitthvað smáræði í hana - þarf ekki að vera merkilegt

4. júní 2010

Dauði bloggsins

Áhugavert að sjá hvernig tæknin þróast alltaf og breytir samfélaginu í leiðinni. Mér finnst t.d. frekar heillandi að sjá hvernig facebook virðist hafa drepið persónulega bloggið. "Blogg hringurinn" minn, sem er að mestu leiti síðan 2003 hugsa ég, er eiginlega algjörlega dauður - það eru allir hættir að blogga.

Núna eru allir á facebook, sumir nota glósurnar fyrir lengri innlegg en flestir eru bara í því að uppfæra statusinn, óskaplega stutt og harðsoðið. Kannski sömu upplýsingar á ferðinni en samt allt öðruvísi en bloggið var.

Hvað ætli komi næst, hvað skyldi verða til þess að engin mun lengur nenna að feeda út status updates?

1. apríl 2009

Framtíðarsýn Þjóðar

Undanfarna mánuði hef ég kynnst nokkru sem ég hef ekki kynnst áður - Virkilega öflugu og skemmtilegu grasrótarstarfi hér á Íslandi. Þar á ég við Hugmyndaráðuneytið sem er búið að vera virkilega iðið og öflugt frá því var komið af stað um áramótin. Þarna er saman komið alveg merkilega breytt samansafn af snilldar fólki víðs vegar úr þjóðfélaginu.

Þetta er ópólitískt og allt er unnið í sjálfboðastarfi. Þarna snýst allt um að virkja fólk til framkvæmda, mynda tengsl og skiptast á áhugaverðum hugmyndum. Þetta er að sjálfsögðu öllum opið og það eru haldnir reglulegir fundir á laugardögum kl 16:30. Auk þess vinnur Hugmyndaráðuneytið að nokkrum sérstökum verkefnum. Sem dæmi um hverju það getur áorkað kom það bréfi í sínu nafni inn á leiðtogafund G20 sem nú er í gangi.

Ég er núna kominn á kaf í sjálfboðastarf hjá Hugmyndaráðuneytinu. Mitt aðal verkefni snýst um að fá þjóðina alla til að mynda sér framtíðarsýn.

Hugmyndaráðuneytið stefnir að því að gera þetta á næstu vikum. Verkefnið kallast Framtíðarsýn Þjóðar og verður nokkurs konar gjöf frá þjóðinni til þjóðarinnar sjálfrar. Verkefnið er metnaðarfullt og stórt í sniðum.

Afraksturinn er tvíþættur. Annars vegar að safna gögnum um gildi og skoðanir þjóðarinnar allrar, en ekki síður að vekja upp umræðuna um þetta brýna málefni, því ef við höfum enga sýn á framtíðina - hvað höfum við þá?

Verkefnisvinnan er nú í fullum gangi og það er við hæfi að nota tækifærið og þakka allan þann stuðning sem verkefnið hefur hlotið hvar sem við höfum barið að dyrum. Við höfum fengið alveg dúndur fólk á sérstaka vinnufundi, stuðning frá HR, HÍ, LHÍ, menntamálaráðuneytinu og dagskrárstjórum bæði hjá Sjónvarpinu og 365.

Það er ótal margt framundan, spennandi hönnun og útfærsla og þrátt fyrir að við séum nú í þeim farvegi að negla verkefnið niður og framkvæma þá erum við alltaf opin fyrir hugmyndum og öll gagnrýni er að sjálfsögðu líka vel þegin.

Verkefni sem þetta stendur og fellur með því hvernig tekst að virkja þjóðina. Þar erum við með fjölmörg járn í eldinum og þetta verða skemmtilegir tímar framundan. Þar erum við að tala um að virkilega nýta tengslin okkar og vinna að framvindu verkefnisins á öllum vígstöðvum. Ætlunin er að þjóðin vinni að framtíðarsýn sinni á milli páska og kosninga, semsagt knappur tími og margt að gerast.

Ef þú vilt vera með, láttu mig þá vita!
gummih@hugmyndaraduneytid.is

Við viljum svo nýta allar hendur sem eru viljugar til verks, allir geta hjálpað, hver á sínu sviði. Akkúrat núna erum við t.d. að skima eftir öflugum vefara, grafíker, fólki sem vill taka upp kynningarmyndbönd eða leika í þeim, fólk sem er til í að virkilega vinna í grasrótinni, hendur á plóg!

Allar hugmyndir, gagnrýni, forvitni og spekúleringar eru svo alltaf velkomnar á hugmynd@hugmyndaraduneytid.is

Það verður svo hægt að fylgjast náið með framvindunni á næstu vikum á Twitter gaur Hugmyndaráðuneytisins og svo er hægt að fylgjast með á fésbók líka

12. mars 2009

Endalaus tónlist af Blip.fm

Nýjasta snilldin sem ég hef sokkið í er Blip.fm sem er nokkurs konar riiiisavaxinn tónlistarflakkari eða útvarpsstöð með endalaust af áhugaverðri tónlist og engum auglýsingum. Þarna er að finna svo til öll erlend lög sem manni dettur í hug og ágætt magn af íslenskum lögum líka. Maður getur svo "Blippað" skemmtileg lög og þeir sem eru vinir manns á síðunni fá þau á playlistann sinn. Að auki birtist það sem ég blippa hérna efst á síðunni og hver sem er getur hlustað.
Hérna er svo hægt að skoða það sem ég hef Blippað og ég mæli með að prófa leitina til að finna einhverja gullmola.

29. janúar 2009

Þráðlaust net í Linux

Alvöru nörd hafa útgeislunSem tiltölulega nýr notandi Ubuntu (8.04 64bit) þá er ennþá ýmislegt að koma mér á óvart.

Eitt sem maður heyrði frekar oft um Linux er að það sé svolítið hell að nálgast drivera. Það er kannski eitthvað til í því að fyrir suman búnað er erfitt að fá driver en þetta er þó langt frá því að vera regla. Í dag var ég til dæmis að uppfæra þráðlausa kortið í tölvunni, losaði mig við lítið USB dongle og fékk mér innbyggt PCI kort. Þetta var eins sársaukalaust og hugsast gat. Slökkti á tölvunni, setti nýja kortið í, kveikti aftur og gat strax farið á netið. Ekkert setup, enginn driveradiskur, engin EULA, einfaldlega plug'n'play, núll vesen.

Til að gæta sanngirni verð ég samt að segja að ég var búinn að prófa annað þráðlaust kort áður - það virkaði eins, ekkert vesen í upphafi en tengingin við það vildi oft detta út svo ég setti það í aðra tölvu hjá mér sem er ekki með Ubuntu. Það er því greinilega ekki sama hvaða tegund af netkorti maður fær sér. Það fyrra sem ég prófaði var frá Gigabyte og það var með stöðugt vesen en seinna kortið var CNet CWP-854 og hefur ekki verið með neitt vesen.

Fyrir þá sem eru að pæla í þráðlausu korti fyrir Ubuntu þá mæli ég með að skoða þessa síðu sem er með lista yfir mörg helstu þráðlausu kortin og sagt hvort þau virka eða ekki beint úr kassanum.

20. janúar 2009

Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?

Þetta er ljósmynd sem ég átti í myndasafninu mínu.

Æh, fyrirgefðu góða skilti, ég vissi það ekki þá, en þú varst eini vinur minn og reyndir að vara mig við. En ég tók bara ekki mark á þér... af því að ég er kjáni sem trúir ekki á töframátt skilta.

7. janúar 2009

Takk, riddari götunnar!

Í dag fór ég til lögreglunnar. Ekki til að játa handahófskenndar sakir eða til að kæra útrásarséní heldur til að sækja veskið mitt sem ég af fimi minni glataði á mánudag þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Í veskinu voru öll greiðslukortin mín, segulkort sem ég þarf að nota út um allt í vinnunni, ökuskírteinið mitt, verðmæti upp á um 10þús ásamt fleiru minna mikilvægu.

Satt að segja hélt ég að þetta væri allt horfið og mikið svakalega er maður allslaus án veskis, sérstaklega í vinnunni þar sem ég var allt í einu orðinn eins og draugur, gat ekki opnað hurðir, stjórnað lyftunni eða fengið mér mat. En, það var ekki öll von úti, einhver hafði fundið veskið mitt úti á götu, útrignt og af útlitinu að dæma búið að keyra duglega yfir það. Sá hinn sami hafði síðan farið samviskusamlega með það til lögreglunnar sem síðan bjallaði í mig og lét mig vita. Allur pappír í því var orðinn að drullu, veskið sjálft var orðið eins og blaut húð að koma við það en það var í lagi með öll plastkortin þannig að í raun var þetta eins og kærkomin tiltekt í veskinu bara.

En allavega, til þín, riddari götunnar, sem ert á ferli og bjargar munum samborgara þinna, óséður og óverðlaunaður. Takk!
(Þessi mynd er frá Lalla)

7. nóvember 2008

Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja

Þessa dagana er ég að koma í loftið nýjum vef. Vefurinn kallast Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja eða bara reynslubrunnur.gummih.com og verður til að byrja með aðallega unninn upp úr skýrslunni
Hugbúnaður á erlendan markað
Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja
Skýrslan var unnin upp úr viðtölum við 27 einstaklinga, þar af marga helstu frumkvöðla og framkvæmdamenn í íslenskri hugbúnaðargerð. Farið var í gegnum viðamikinn spurningalista og í skýrslunni var reynt að draga fram það helsta sem kom fram um þeirra reynslu af því að stofna fyrirtæki, þróa vöru og koma henni á markað erlendis.

Núna er semsagt hugmyndin að gera þessa skýrslu aðgengilega á netinu, gjaldfrjálst að sjálfsögðu, og reyna að skapa í leiðinni umræðuvettvang um efni hennar. Ég er búinn að opna vefinn þó að hann sé ekki fullkláraður og hægt er að lesa hluta skýrslunnar þar nú þegar.

Þarna er farið yfir vítt efni sem snýr að flestu sem viðkemur hugbúnaðargerð og ferlinu við að koma hugbúnaði á erlendan markað. Aðal áherslurnar eru þróun vöru, rekstur fyrirtækis og erlend markaðssetning en að auki er talsvert að efni sem er tileinkað öðrum viðfangsefnum.

Allar hugmyndir og athugasemdir eru vel þegnar og ef þið hafið áhuga á efninu þá er um að gera að kommenta bara við greinarnar ef þið hafið einhverjar athugasemdir.

6. nóvember 2008

Nýsköpun.org

Hann Hjalli vinur minn er ásamt fleirum búinn að koma upp ansi merkilegum vef.
Vefurinn kallast nyskopun.org og hann er opinn vettvangur fyrir hugmyndir, upplýsingar og umræður um nýsköpun.
Semsagt breiður vettvangur til að efla, auka og hlúa að allri nýsköpun hérna. Þarna er ætlunin að virkja hugvit og grasrótarstarf sem núna er að grassera. Það eru margir sem ganga um með góða hugmynd í kollinum og þurfa bara létt hnik til að koma henni af stað.
Þessi vefur er semsagt wiki-vefur og hver sem er getur skráð sig inn og skrifað efni þarna, komið með hugmyndir, eða rætt leiðir til að hjálpa öðrum hugmyndum. Miðla þekkingu sem kemur öðrum til góða. Því með því að hvetja sprotastarfið sem mest við megum þá komum við auðvitað okkur sjálfum til góða.

Jæja - og hvað svo?

Já, ég get bara ekki orða bundist. Ég er, líkt og margir aðrir, alveg gríðarlega ánægður með Barack Obama sem nýjan Bandaríkjaforseta. Ég er að eðlisfari ansi tortrygginn gagnvart stjórnmálamönnum en þrátt fyrir að ég hafi fylgst grannt með Obama í rúmlega ár núna þá kann ég ennþá alveg fjandi vel við hann. Ég hlustaði m.a. á bókina hans sem kallast Audacity of hope og fjallar í stórum dráttum um viðhorf hans til lífsins og aðdraganda kjörs hans inn á Bandaríkjaþing.
Þarna finnst mér fara maður sem talar af skynsemi og hefur hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. En hvernig forseti hann mun reynast verður auðvitað bara að koma í ljós og hann verður auðvitað dæmdur af verkum sínum en ekki loforðunum.
En þar er hann svosem heppinn líka, því að taka við af Bush er svona sirka eins og að stíga á svið eftir að næsti söngvari á undan sofnaði þar í eigin ælu.