18. apríl 2002

Andskotans fyllerí á virkum dögum
Hvað á það eiginlega að þýða að fylla blásaklausa stúdenta á virkum dögum. Haldiði ekki að báðir tengdaforeldrar mínir hafi haldið upp á afmælið sitt og pottfyllt aumingja mig með léttvíni, ég held að ég hafi ekki drukkið minna en heila flösku af léttvíni! Svo vöðlaðist maður einhvernvegin heim með leigubíl heim og tókst að tapa gemsanum mínum í leiðinni, allt þeim að kenna! Svo vaknaði maður - allt of seint og algerlega ekki skelþunnur í morgunn og þurfti að hjóla eftir bílnum mínum, í þessari skemmtilegu rigningu. Já það er skelfilegt að vera svona fórnarlamb, eins gott að þetta gerist ekki aftur, reyndar hef ég tryggt það að þetta gerist allavega ekki á laugardaginn en þá ætla ég að heilsa upp á Hjört kunningja og stúta einni viskíflösku saman, ekki þetta görótta léttvín takk!

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd