30. apríl 2002

Eðlisfræðilögmál óvirk um tíma?
Það virðist sem að einhver óútskýranlegur hlutur hafi valdið því að eðlisfræðilögmál hættu að virka um tíma í gær. Málið er það að ég og kærastan mín vorum að éta ís þegar önnur ísskálin datt í gólfið, það var hughreystandi að sjá að þyngdarlögmálið var enn í fullu fjöri en eftirleikurinn var frekar ógnvekjandi. Ekki nóg með það að skálin skyldi ekki brotna þegar hún lenti á gólfinu heldur lenti hún öfugt, þ.e. ekki á hvolfi. Ég gapti auðvitað eins og álfur á þetta allt saman og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað andlitið datt af mér þegar ég sá að allur ísinn var ennþá í skálinni ekkert hafði farið úr henni þegar hún rúllaði niður í gólfið! Heimsmynd mín hrundi. Sem betur fer var ís við höndina til að kæla heilann og sefa taugarnar.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd