25. maí 2002

Jæja, hvað á svo að kjósa?
Alveg er ég kjaftstopp þegar ég fer að tala við sjálfan mig um hvað ég ætti að kjósa, ekki kýs ég Sjálfhælnisflokkinn það er víst, Reykjasvíkurlistinn hefur heldur ekki verið að gera það góða hluti að mér finnist hann verðskulda atkvæði mitt og þá liggur bara fyrir að henda atkvæðinu mínu í einhverja sem ná ekki kjöri! Það er frekar súrt! Ég sé ekki tilgang í að skila auðu þar sem þeir eru alltaf flokkaðir með ógildum seðlum og mér sýnist að eina fjörið væri að skrifa vísu á kjörseðilinn. Samt er ég svo valdasjúkur að ég mun áreiðanlega rölta í Hagaskóla á eftir og kjósa einn af litlu flokkunum, kannski að ég taki bara tening með mér, það er sennilega sniðugast.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd