Smárabíós blásarasorp
Eftir að Smáralindin kom til sögunnar við mikla kvenhylli þá hef ég álpast þangað nokkrum sinnum og þá sérstaklega til að fara í bíó. Bíóið er nokkurn vegin brilljant fyrir utan blindandi leisigeislavopn í byrjun sýninga í sal eitt. Hinsvegar þá er eitt þar sem ég þoli ekki og það eru blásararnir á klósettinu, ægilega sjæní ryðfríir kassar en þegar maður ætlar að þurrka á sér hendurnar þá andar hann blíðum sunnanblæ á hendurnar á manni í sirka 5 sec. Þá þarf maður að fálma eins og brjálæðingur til að fá hann af stað aftur og endurtaka leikinn 5 sec seinna. Þegar ég ætla að þurrka á mér hendurnar þá vil ég heitan eyðimerkurstorm á hendurnar í minnst mínútu. Ekki eitthvað sjæní barbí pjátur, burt með þetta rusl!
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd