22. júlí 2002

Afgreiðslufólk - annar hluti
Já það er eitthvað með þetta afgreiðslufólk, ég fór áðan í Nóatún og eins og svo oft áður bað ég um að taka 1000 kall aukalega af kortinu. Mér til mikillar furðu samþykkti afgreiðslustrákurinn það án málalenginga og sýndi það að hann er væntanlega fulltrúi þeirra 10% afgreiðslufólks sem ég ræddi ekki um síðast. Hann stimplaði inn upphæð sem var 1000 krónum hærri en það sem ég var að kaupa, ég kvittaði fyrir og hann sagði "takk fyrir" - en enginn 1000 kall! Ég þurfti að stöðva hann í því að fara að afgreiða næsta kúnna til að betla 1000 kallinn minn af honum. Djöfulsins drasl!!

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd