17. júlí 2002

Antíkbensíndælur
Hversvegna í skrattanum stendur á því að bensíndæluhandföng eru svona heimskulega útfærð? Þetta er hönnun síðan á millistríðsárunum! Maður þarf að bogra við þetta helvíti og halda handfanginu inni takk fyrir meðan maður dælir, því að þó að það sé sérstakur fítus til að hætta að dæla þegar tankurinn er fullur þá er sjaldnast græja til að halda handfanginu í dælingu. Svo er eins og að einhverjir spekúlantar hafi ákveðið að þetta væri besta útfærsla sem skynsamlegt væri að bjóða almúganum. Afhverju í andskotanum er ekki hægt að skella bara slöngunni í tankinn og stilla svo á dælunni sjálfri hvað maður vill mikið bensín, smella á takka og bíða? En nei það væri of auðvelt, þess í stað verður maður að standa boginn í baki með vitin í bensíngufunum haldandi um handfangið sem á veturna verður jökul frjósandi kalt! Persónulega held ég að þetta sé í raun valdafíkn bensínkónganna sem í brjálæði sínu vilja að við "þegnarnir" bugtum okkur og beygjum þegar við dirfumst að ná okkur sjálf í bensín til að borga þeim örfáum krónum minna.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd