24. júlí 2002

Hriðjuverkaþurrkarar
Ég ætla aldrei framar að þurrka fötin mín í þurrkara. Ég hef nefnilega komist að hinum sjokkerandi sannleik varðandi þurrkara. Þeir eru í raun ekkert annað en risastórir cyborg naflar! Nú segja kannski sumir að ég sé geðveikur, en ég veit betur og það sem meira er þá hef ég sönnur fyrir máli mínu. Naflakusk! Þetta annars-heims efni sem myndast í nöflum flestra fullvaxinna karlmanna, lengi vel hélt ég að þetta efni kæmi hvergi annars staðar fyrir í alheiminum en þar. Þar til að ég áttaði mig á því að þurrkarar framleiða líka naflakusk og í gríðarlegu magni! Hver svo sem ástæðan er á bakvið framleiðslu þessara gríðarstóru nafla er þá er ég handviss um að það eru uppi áform um að nota naflakusk í illum tilgangi, borgaryfirvöld gætu átt stóran þátt í þessu, því hvert fer þurrkara-naflakuskið? Jú í ruslið og hverjir eyða gríðarlegum fjármunum í að safna rusli og FLOKKA það? Kommon, þetta liggur í augum uppi, ég tel að borgaryfirvöld séu að framleiða gereyðingarvopn úr naflakuski og ætla að segja sig úr lögum við Ísland!! En þau fá sko ekki naflakusk úr þurrkurum frá mér, nósörí, hér eftir þurrka ég fötin mín í örbylgjuofninum!

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd