Sálarkreppa
Í gær fór ég með glænýja tölvu til Óla vinar míns sem að ég hafði keypt og sett upp fyrir hann. Þetta var glimrandi góð vél og ef að vélin hans Óla er Ferrari þá er vélin mín BMX! Þið getið ímyndað ykkur hvernig mér líður, nokkurnveginn eins og að vera smiður og þurfa að nota múrstein fyrir hamar! En jæja, það þýðir víst ekki að væla yfir þessu, því næst þegar ég kaupi mér tölvu þá skal það sko vera algjör þrusa, og þá skal ég sko hlæja að ykkur öllum, ÖLLUM segi ég, BWAaaaHAahahahahaarrr!!!! - ...eða ekki?
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd