Spurning um tilgang
Til hvers brennir maður á sér fingurna? Frá því að ég man eftir mér hef ég verið að brenna mig á fingrunum með vissu millibili. Ég brenndi mig einmitt áðan þegar ég var að taka lok af mallandi pönnu og sjóðheit gufan lék við fingurinn á mér og ég hugsaði með mér "þetta fer nú að verða svolítið pirrandi!" Þetta er auðvitað bara spurning um tilgang og sjálfur sé ég sáralítinn ávinning í þessari iðju. Ég hef þessvegna tekið þá ákvörðun að hætta að brenna mig á fingrunum frá og með deginum í dag, þannig að ef þú hafðir hugsað þér að biðja mig um að rétta þér gullúrið þitt sem þú misstir ofan í djúpsteikingapottinn þá geturðu gleymt því!!
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd