Fjarstýringar
Í dag vil ég tala um fjarstýringar. Hvað eru til margar fjarstýringar á einu heimili? Ein fyrir hvert sjónvarp, ein fyrir afruglarann, ein fyrir hvert video, ein fyrir hverjar græjur, DVD, heimabíó ... ok, allavega ansi margar fjarstýringar, segjum 5 stykki á meðal heimili (hjá bróður mínum eru allavega 13 í notkun). Hvað eru þá margar fjarstýringar í hinum vestræna heimi? Hvað gera svo allar þessar fjarstýringar? Jú, þær skjóta innrauðum geislum út í allar áttir og vonast til að einhverjir þeirra hitti sjónvarpið, vídeóið, eða hvaðanúer. Á heimsvísu er þetta gríðarlegt magn af innrauðum geislum sem kemur frá þessum masssa af fjarstýringum. Og eins og við vitum þá er innrauðir geislar bara eitthvað fansí orð yfir hitageisla. Ef við berum síðan saman umræðuna um "hitun jarðar" eða "global warming" eins og það heitir víst í útlöndum þá kemur fram greinilegt samband á milli hitunar jarðar og fjölda fjarstýringa í heiminum. Fjarstýringar fóru að ryðja sér til rúms um 1980 og fljótlega eftir það fóru vísindamenn að spá því að við myndum stikna og að við myndum brenna í mjög svo náinni framtíð. Tilviljun?!? Það held ég allavega.
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd