29. september 2002

Tóm tjara
Sem sérlegur áhugamaður um malbik þá hef ég stundum verið að velta því fyrir mér hvað sé að þessum mönnum sem stjórna malbikuninni. Aðal efnið í malbikið er annarsvegar grjót og hinsvegar tjara og undanfarið hefur mér virst að það sé alltaf minna og minna grjót í nýju malbiki en alltaf meiri og meiri tjara. Það er svo þessi extra tjara sem sest á bílinn hjá manni þannig að maður þarf veghefil til að þrífa á honum lakkið, það er tjaran sem sest á dekkin á bílnum þannig að hann verður eins og belja á svelli og verður til þess að á hverju ári er sett nýtt met í árekstrum. Svo er allt þetta extra svarta ryk sem sest á gluggasyllurnar hjá þér á veturna, það er tjara. En hvernig stendur eiginlega á þessum vinnubrögðum. Er grjótskorturinn á höfuðborgarsvæðinu orðinn svo mikill að tjara er orðin ódýrari en grjót? Eða borgar þetta sig vegna þess að tjara spænist auðvitað upp en grjót sér um að malbikið þoli slit og með því að spara grjótið þá endist malbikið í 3 í staðinn fyrir 6 ár og þá þarf að fá malbikunarkallana aftur? Þetta er samsæri segi ég!! Samsæri!!! (... og ég vil líka græða á því!)

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd