7. október 2002

Kók er megrandi
Já, þið sem þekkið mig vel vitið væntanlega hvað mér er illa við að vera með staðhæfingar nema að ég sé algerlega fullviss í minni sök. Þegar maður drekkur kók þá losnar allt gosið úr því og fyllir magann af koltvísýringi þannig að maður verður fyrr saddur. Það er svo ekki ein einasta kaloría í koltvísýringi svo að þetta er allt saman alveg gríðarlega megrandi! - og ekki skemma þetta fyrir mér!

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd