5. september 2004

Dóna banner

Ég veit ekki alveg hvort ég er sáttur við þennan banner hérna fyrir ofan. Hann er svosem ekkert of stór eða uppáþrengjandi en mér finnst hann bara hálf dónalegur.
Til dæmis finnst mér óþarfi að segja "Get your own blog", við gesti sem eru að skoða bloggið mitt, eins og þeir megi ekki skoða bloggið mitt og eigi bara að búa sér til sitt eigið. Og ekki nóg með það heldur líður mér alltaf eins og að þessi banner sé að gefa mér fingurinn þegar ég les upphrópunina "Blog This!" - eða er ég bara með ofsóknarbrjálæði?

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd