2. september 2004

Etch a Sketch 2.0

Hver man ekki eftir Etch a Sketch og fögrum myndum af tröppum, völundarhúsum og illa teiknuðum hringum. Núna er komin ný útgáfa "Etch a Sketch 2.0", stórlega endurbætt. Nýja útgáfan er með stærri skjá (17" eða 20") rauða litnum hefur verið skipt út fyrir stílhreinni hvítan lit, búið er að setja fót á gripinn og hnapparnir hafa verið fjarlægðir þannig að maður þarf ekki lengur að bisa við að teikna mis góðar myndir á þetta dót.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd