8. september 2004
Real Alternative v1.23
Hver elskar ekki Real og þeirra þægilega viðmót við þrælan.. ehemm, viðskiptavini sína? Ef þú ert eins og ég þá hefur þú væntanlega neitað að setja upp Realplayer á tölvum hjá þér síðan árið 2000 þegar innsetningarforritið fyrir RealPlayer lét þig ganga í gegnum 30mín skráningarferli - bara til þess að installa 4 mismunandi frostgjörn forrit á tölvuna sem reyna þar að ná öllum völdum og hindra önnur forrit í að fá vinnsluminni og örgjörvatíma. Gallinn við þessa réttlátu þvermóðsku hefur auðvitað verið sú að maður hefur ekki getað horft eða hlustað á RealMedia skrár síðan Clinton var forseti. Sem betur fer virðist RealMedia vera að hverfa af yfirborði jarðar en ef þig langar í forrit til að horfa á RealMedia skrár án þess að láta Real frústrera þig til andskotans þá er kannski þess virði að tékka á þessu littla forriti: Real Alternative v1.23
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd