Jæja núna hefur gúglið loksins tekið við sér og farið að spræna inn auglýsingum á síðuna mína þannig að ég ætti að fara að hala inn milljónirnar... Reyndar hafa viðtökurnar ekki verið neitt sérlega sannfærandi, ég held að reikningurinn minn sé kominn upp í 2 cent eða eitthvað álíka. En ég efast ekki um að milljónirnar láta ekki á sér standa fyrst að það eru loksins komnar auglýsingar á orginal blogspot slóðina, sem lesendatorfan mín er svo ofsalega trygg.
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd