16. nóvember 2004

Firefox Extensions

Eitt það al svalasta við Firefox er að það er opið apparat og þessvegna er til glás af ókeypis viðbótum (extensions) fyrir það. Viðbæturnar eru af öllu tagi, allt frá einföldum "Blog this" valmöguleika í context menu upp í ftp client og Rss lesara (sem báðir geta opnast í flipa). Flestar viðbætur eru undir 100K og installast beint af netinu. Auðveldast og öruggast er að ná í þær á Firefox Extensions síðunni.
Stundum nennir maður samt ekki að fara að browsa og leita að öllum skemmtilegu viðbótunum og þessvegna vill maður geta vistað þær og átt þær aðgengilegar. Firefox viðbætur eru af skráagerðinni .xpi og til að installa viðbót af diski er auðveldast að draga xpi skjalið inn í Rebba, þá opnast valgluggi þar sem maður smellir svo á "Install". Til að vista viðbætur af Firefox Extensions síðunni hægri smellir maður bara á "Download Extension" hlekkinn og velur "Save link as..."
Flestar viðbætur hafa einhverjar stillingar og þær er hægt að nálgast í {Tools->Extensions} og þar getur maður líka fjarlægt viðbætur.
Til að sjá nokkur flott extensions þá getið þið gluggað í þennan spurl straum, en ég er með flestar viðbæturnar þar settar upp hjá mér.
Næst: Stillingaskrárnar user.js og chrome.css

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd