21. nóvember 2004

Tabbed browsing

Það sem oft er nefnt sem aðal munurinn á Firefox og IE er að Firefox bíður upp á fliparáp (tabbed browsing), margar síður í einum glugga. Fyrst þegar ég byrjaði að nota hann þá varð ég samt frekar fúll því það voru samt alltaf að opnast nýir Ff gluggar þannig að maður var kannski með þrjá Ff glugga og hver þeirra með 2-3 flipa svo maður þurfti að opna alla gluggana til að leita að ákveðinni síðu sem maður var með opna. Það sem maður vill gera er að hafa bara einn Firefox glugga nema í þeim tilvikum þegar það opnast mjög litlir gluggar því þeir eiga í raun ekki heima á heilum flipa. Þessir litlu gluggar sem ég er að tala um eru þá login gluggar eða vefleikir eða svoleiðis sem vilja helst fá úthlutað glugga af mjög ákveðinni stærð. Eftir 2 daga með Firefox datt ég niður á lausnina, maður verður að hafa skránna user.js í prófílnum sínum og hún verður að innihalda eftirfarandi línur:
  // Reveal more tab/window options:
  user_pref("browser.tabs.showSingleWindowModePrefs", true);
  /* Force New Windows Restrictions
  0: Divert *all* new windows to current tab/window or new tab
  1: Don't divert *any* windows spawned by JS
  2: Don't divert JS with size/placement/toolbar info */
  user_pref("browser.link.open_newwindow.restriction", 2);

Þessar línur gera það að verkum að nýr option bætist við advanced stillingarnar þínar undir "Tabbed Browsing", nefnilega valmöguleikinn "Force links that open in new windows to open in:" sem þú skalt haka við og velja svo "a new tab"
Hér er síðan user.js skjalið mitt, það inniheldur þessar stillingar, þú getur vistað það í default profile möppuna þína.
Þegar þetta er búið er eftir pirringurinn að þegar maður lokar flipa þá er ekki valinn flipinn sem maður var að skoða síðast á undan heldur flipinn sem er lengst til hægri, þessu er hægt að redda með extensioninu Focus Last Selected Tab. Ef það gengur ekki að installa þessu beint er tvennt sem hægt er að gera, segja Firefox að treysta svæðinu með því að smella á gulu stikuna sem byrtist efst í síðunni. Eða þá að vista exstension xpi skránna á disk og installa hana annaðhvort með því að draga hana inn í Firefox eða nota file->open í Firefox.
Þessi uppstilling á flipunum finnst mér optimal, allar venjulegar síður opnast í flipa, síður sem krefjast ákveðinnar stærðar opnast í sér glugga en ennþá er hægt að opna fleiri eintök af Firefox ef maður vill.
Næst: View Selection Source

18. nóvember 2004

Stillingaskrárnar user.js og chrome.css

Til að fá sumar skemmtilegustu stillingarnar í rebba verður maður að vera tilbúin að gerast niður og skítugur (get down and dirty) og edita nokkrar skrár. Ég veit í það minnsta um nokkrar svona stillingar sem mér finnst algjört möst og þessvegna er hérna smá quickie um tvær helstu skrárnar og seinna þegar ég hef tíma mun ég koma með Firefox breytingar sem nota þessar skrár.
Skráin user.js er notuð fyrir sérsniðnar stillingar sem eru ekki aðgengilegar í viðmótinu. Þetta geta til dæmis verið virkjun fleiri fliparáps valmöguleika (tabbed browsing) eða afvirkjun blikks. Skráin er ekki til staðar eftir uppsetningu og maður verður að búa hana til handvirkt og kópera á réttan stað. User.js skráin verður að vera í möppunni:
[Application Data mappan (mism. eftir stýrikerfum)]\ Mozilla\ Firefox\ Profiles\ [8stafa runa].default\
í mínu tilviki er slóðin:
C:\ Documents and Settings\ gudmundurh\ Application Data\ Mozilla\ Firefox\ Profiles\ okbq6txg.default\
Skráin userChrome.css er notuð til að gera ýmsar aðrar sérsniðnar breytingar á viðmótinu, t.d. útliti tækjastiku, leturstærð í vallista og fleira. UserChrome.css er heldur ekki búin til í uppsetningunni og maður þarf að búa hana til sjálfur (eða kópera). Hún er staðsett í möppunni chrome sem er geymd í sömu möppu og user.js hér að ofan, þar má líka finna skrá sem heitir userChrome-example.css, þar má sjá ýmis dæmi um stillingar og maður getur vistað hana sem userChrome.css ef maður vill.
Næst: Tabbed browsing

16. nóvember 2004

Firefox Extensions

Eitt það al svalasta við Firefox er að það er opið apparat og þessvegna er til glás af ókeypis viðbótum (extensions) fyrir það. Viðbæturnar eru af öllu tagi, allt frá einföldum "Blog this" valmöguleika í context menu upp í ftp client og Rss lesara (sem báðir geta opnast í flipa). Flestar viðbætur eru undir 100K og installast beint af netinu. Auðveldast og öruggast er að ná í þær á Firefox Extensions síðunni.
Stundum nennir maður samt ekki að fara að browsa og leita að öllum skemmtilegu viðbótunum og þessvegna vill maður geta vistað þær og átt þær aðgengilegar. Firefox viðbætur eru af skráagerðinni .xpi og til að installa viðbót af diski er auðveldast að draga xpi skjalið inn í Rebba, þá opnast valgluggi þar sem maður smellir svo á "Install". Til að vista viðbætur af Firefox Extensions síðunni hægri smellir maður bara á "Download Extension" hlekkinn og velur "Save link as..."
Flestar viðbætur hafa einhverjar stillingar og þær er hægt að nálgast í {Tools->Extensions} og þar getur maður líka fjarlægt viðbætur.
Til að sjá nokkur flott extensions þá getið þið gluggað í þennan spurl straum, en ég er með flestar viðbæturnar þar settar upp hjá mér.
Næst: Stillingaskrárnar user.js og chrome.css

Uppsetning á Firefox

Þar sem ég virðist núna vera orðin yfirlýst Firefox grúppía þá ætla ég að vera með nokkur blogg um uppsetningu og svalar viðbætur á rebba. Fyrst verður eitthvað um uppsetningu og lykilatriði við stillingar sem maður er að nota og þegar það er búið fer ég út í meira sexí hluti eins og hvernig maður hreinsar burtu auglýsingar af vefsvæðum í 3 auðveldum skrefum og eitthvað.
Fyrir þá sem langar að skipta þá er fyrsta skrefið að ná í Firefox 1.0 (4.7MB innlent)
Installið skýrir sig nokkurn vegin sjálft, það er sjálfsagt að fylgja þeirri gullnu reglu að loka öllum forritum áður en maður byrjar. Installið getur svo importað IE stillingunum þínum eins og vistuð password, favorites, proxy stillingar og fl. Í mínu tilviki virkaði það mjög vel, umskiptin vöru algjörlega sársaukalaus.
Mundu svo að velja 'yes' þegar Rebbi spyr þig hvort hann megi vera default browserinn þinn - ég hef ekki lent í neinu veseni með hann.
En refurinn er ekki alveg unninn þó maður hafi installað, núna er eftir að sérsníða hann að manns eigin þörfum og notkun. Þar sem Firefox uppsetningin er nokkurnvegin laus við öll plugin þá er skynsamlegt að byrja á að setja upp þau helstu. Firefox býður reyndar upp á það að ná í plugin þegar maður opnar síður sem krefjast þeirra en oft vill maður eiga exe skrárnar fyrir plugin-in til að spara erl dl og til að geta sett dótið almennilega upp hjá vinum og kunningjum.
Flash/Shockwave (684K erl)
Quicktime (erl)
Acrobat Reader (erl)
Java 5.0 Offline Installer (erl ~15MB)
Glás af pluginum fyrir mismunandi stýrikerfi (erl)
Sumum pluginum, eins og Quicktime og Acrobat Reader, þarf ekki að installa ef þau voru sett upp á undan Firefox.
Næst: Firefox Extensions

14. nóvember 2004

Stóra "Shit happens" málið

Ef þetta er satt og rétt, sem ég verð að telja mjög sennilegt, þá verð ég að játa að ég hafði þessa einstaklinga fyrir rangri sök. Gaman að geta fækkað ranghugmyndum sínum með því að fylgjast með fjölmiðlum, því miður er það allt of oft hinn veginn.

12. nóvember 2004

FireFox

Jæja, eins og glöggir hafa kannski getið sér til um þá er ég núna búinn að éta rauðu pilluna og farinn að vafra á EldRebba (sem gerir mig væntanlega að EldRefsara). Þetta lítur allt saman vel út, t.d. eru ákveðnar síður sem frysta IE en ekki FF. En hvað um það aðalatriðið er auðvitað hugsjónin - "Stick it to the man!" því FireFox er rokk.
Get Firefox!

11. nóvember 2004

9. nóvember 2004

Jæja krakkar, í dag kennum við græðgi

Ég held að kennararnir í þessari frétt séu ekki alveg að hjálpa félögum sínum. Með því að ætlast til að fá "forstjóralaun til framtíðar" þá dettur mér bara í hug frasinn "too many chiefs and no indians".
Í mínum huga eiga kennarar skilið að fá hærri laun og margir forstjórar ættu að vera á lægri launum en hversu veruleikafirrt þarf fólk að vera til að gera svona kröfu? Hversvegna ekki bara einkabílstjóra og erótískan nuddara handa hverjum og einum kennara líka, það væri svona álíka raunsætt.
Auðvitað vilja allir bæta sinn hag en maður má samt ekki gleyma sér í græðgislegum draumórum.

130 ára gamall eldur slökktur í Kína

Stundum verð ég bara alveg gáttaður.
Lengi lifir í gömlum glæðum býst ég við.

1. nóvember 2004

Vote Duh

hérna eru nokkur vídeó af valdamesta manni heims - sem er einmitt líka heimskasti maður valds
Bush1, Bush2, Bush3, Bush4, Bush5
Bush6 (erlent)
Svo er hérna einn SNL jókur