14. febrúar 2005

Leitarboxið í Firefox og nýjar leitarvélar

Leitarboxið í Firefox gerir þér kleyft að leita á google eða öðrum leitarvélum.
Það er sáraeinfalt að bæta við fleiri leitarvélum, maður smellir bara á leitarvéla iconið og velur 'add engines' neðst á listanum. Ég mæli sérstaklega með imdb, wikipedia og Webster.
Það er hinsvegar ekkert augljóst hvernig á að fjarlægja leitarvélar úr listanum. Mér finnst best að fara bara í möppuna C: \Program Files \Mozilla Firefox \searchplugins en þar eru leitarvélatilvísanirnar geymdar. Það eru 2 skrár fyrir hverja vél, ein .src skrá og ein mynd (.gif eða .png). Eftir að hafa eitt viðkomandi skrám restartar maður Rebba og vélin er horfin úr listanum.
Annað atriði með leitarboxið er að mér finnst það vera frekar lítið. Til að hafa það stærra þurfa eftirfarandi línur að vera í userChrome.css skránni (sjá nánar um userChrome.css):
#search-container, #searchbar {
-moz-box-flex: 400 !important;
}

næst: Firefox á sterum

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd