11. apríl 2005

"Þjónustuver" Símans

Djöfull sem ég er búinn að fá mig full saddann af þessu svokallaða þjónustuveri símans. Þvílíkt rangnefni, það ætti frekar að kalla þetta þjónustuSKVER símans því maður er gjörsamlega skveraður um nokkurn einasta snefil af þjónustu með þessu drasli.
Ég er sjálfur frekar illa settur með nettenginguna mína, ég er nefnilega tengdur við netið í gegnum breiðbandið og það er þjónusta sem síminn ákvað að sturta niður klósettið og hætta að bjóða uppá hana fyrir nýja áskrifendur. Þeir sem voru áskrifendur fyrir, eins og ég, eru hinsvegar látnir danka inni í kerfinu á meðan því fer stöðugt hrakandi. Þessa viku hefur tengingin verið til stöðugra vandræða, fjögur kvöld höfum við nánast ekkert komist á netið. Á föstudaginn var engin tenging og ég reyndi í flónsku minni að hringja í 800 7000 til að fá aðstoð, mér var tjáð að ég væri nr. 12 í röðinni, 45 min seinna var ég enn að bíða í símanum, þá orðinn nr. 3 í röðinni - á 45 mínútum hafði þetta ógurlega þjónustuver semsagt dílað við 9 kúnna! Það gerir einn kúnna á 5 mínútna fresti og það skal enginn segja mér að enginn þessara 9 hafi ekki gefist upp á að bíða, eins og ég gerði þarna þegar ég var orðinn 3. í röðinni og nettengingin hafði lagast af sjálfu sér á meðan ég beið.
Það er svo auðvitað ekkert vesalings fólkið sem svarar í símann sem ég er að ergjast út í, það eru stjórnendur þjónustuversins sem annað hvort eru óhæfir í starfi og vita ekki hvert ástandið er eða þá að þeim er hreinlega skítsama um hvaða þjónustu viðskiptavinir fyrirtækisins eru að fá.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd