Núna er kominn tími á smá græjublogg hjá mér. Ég get að öllum líkindum flokkast sem náungi með tækjafetish á alvarlegu stigi og græjan sem ég er veikastur fyrir þessa dagana er stjörnusjónauki.
Ég hef verið geim nöttari frá því ég man eftir mér en einhverra hluta vegna hef ég aldrei fjárfest í stjörnukíki. Ég hef núna aðeins verið að skoða þessar græjur og mér líst held ég best á þetta apparat hér,
Meade SN-10.
Þessi er gríðarlega ljósnæmur (25cm víður spegill), hann er með snúningsmótor og
tölvustýringu - sem er auðvitað über svalt. Þetta þýðir það að þegar ég stilli honum upp þá þarf ég bara að hafa hann láréttann og vísa honum í norður. Tölvan sér svo um að stilla hann rétt, hún bendir honum sirka á sitthvora stjörnuna og segir mér að stilla kíkinn þannig að þær séu akkúrat í miðju kíkisins. Þegar maður er búinn að þessu fer maður í valmyndina á tölvustýringunni, velur hvað maður vill skoða og kíkirinn finnur það sjálfkrafa. Þetta gæti t.d. verið Satúrnus, Plútó (já hann sést með þessum) eða jafnvel vetrarbrautir, halastjörnur eða sprengistjörnur. Í tölvunni er listi yfir 30.000 mismunandi hluti á himninum. Algjör snilld. Jörðin snýst svo auðvitað ansi hratt þegar maður er að skoða eitthvað gegnum öflugan kíki og rafmótorinn á honum sér um að það hafi ekki áhrif, hlutir haldast í miðju kíkisins.
Einn af fítusunum við þennan flotta kíki er að það er tiltölulega auðvelt að tengja digital myndavél eins og Canon 300D við hann og taka myndir á löngum tíma. Þannig getur maður náð mjög flottum myndum.
Þessi gaur hér tekur myndirnar sýnar með nákvæmlega svona kíki - hann er samt með mun þróaðari, peltier kælda, myndavél sem er sérhönnuð fyrir stjörnuljósmyndun en þetta gefur ágæta mynd af því hvað svona sjónauki getur. Ég mæli sérstaklega með því að skoða myndirnar hans af
stjörnuþokum og sprengistjörnum , en það er líka mikilvægt að muna að svona myndir snúast mikið um að kunna að vinna rétt úr upprunalegu myndunum sem teknar eru.
Hérna er svo náungi sem notar Canon 300D myndavél og mjög svipaðan en örlítið eldri sjónauka frá sama framleiðanda. Frábærar myndir hjá honum líka.
Ó, og á meðan ég man - ég HATA internet um breiðband, tengingin datt út þrisvar sinnum meðan ég var að skrifa þetta blogg. Bráðum kemur blogg um valmöguleika á nýjum nettengingum.

Stjörnukíkir
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd