Í beinu framhaldi af síðasta bloggi þá fór ég í
Start í dag og verslaði mér 200GB Seagate Baracuda disk (186GB í win). Og svo fékk ég mér líka þennan
flotta flakkara með, Ferrarí rauður að sjálfsögðu.
Saman kostaði þetta 16þús sem mér finnst reyndar bara nokkuð vel sloppið. Flakkarinn er úr áli og leiðir því hita vel í burtu, þó að Seagate sé svosem ekki þekktur fyrir að hitna mikið. Þetta er líka afar hljóðlátt, enginn vifta í flakkaranum og það heyrist varla í disknum. Svo er þetta alveg ótrúlega hraðvirkt. Ég er búinn að spæna 100GB inn á flakkarann og mér fannst það ekkert mikið hægara en að flytja svona mikið magn á milli internal diska.
Fyrst ég var svo búinn að taka upp VISA kortið á annað borð fékk ég mér líka nettan
USB2 kortalesara sem kostaði bara 1900, algjört pain að tæma CF kort í gegnum USB1.1 interfacið í myndavélinni.

Flakkari og tvöhundruðþúsundmilljón bæta diskur
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd