Hér er græja sem mig langar í! Hún heitir Rapsody RSH-100. Þessi græja er eins og flakkari í öðru veldi, þú getur tengt þetta við sjónvarp til að spila bíómyndir eða sýna ljósmyndir, þú getur flutt ljósmyndirnar þínar beint af myndavélinni og inn á þetta og það er skjár á þessu þannig að þú getur tengt þetta beint við græjur til að spila tónlistarsafnið þitt! Til að toppa þetta fylgir svo fjarstýring með, sem færir þetta á alveg nýtt level.
þetta kostar 23þús og það er án disks, þannig að ef maður miðar við að hafa 250gíg til afnota þá er maður líklega að spjalla um 33þúsundkall. Sæmileg dæld í veskið en afar flott græja í vasann.
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd