17. maí 2005

Spurning um að taka þessu eins og nýju neti?

Djöfulsins gargandi snilld!
Ég hef ekki verið mikill vinur Internets um breiðband tengingarinnar minnar undanfarið og það endaði með því að ég flutti allt klabbið mitt frá símanum (bless bless þjónustuskver símans) og yfir í Og1.
Núna rétt í þessu var 6Mb tengingin mín að detta inn og ég verð að segja að hún er afar sannfærandi, ég prófaði að sækja 100MB skrá af Huga til að testa og því er skemmst frá að segja að ég beið bara meðan hún var sótt og ég er ekki mjög þolinmóður maður. Það var hrein unun að sjá progress barið svoleiðis fljúga í 100%. Eða "fljúga" þannig séð, hún var 137sekúndur að sækja 100MB skrá sem verður að teljast djöfulli gott. Lokatalan var 730KB(kílóBæti!) á sekúndu sem er það sama og 5,84Mb/sec alveg ótrúlega sannfærandi. Þetta gera 44Megabæti á mínútu! (Harði diskurinn í fyrstu tölvunni minni var 52 megabæti)
Já ég er happy camper núna - og svo er ótakmarkað erlent download, mwaaahahahahaa.
(Ó undur og stórmerki netið hefur ekki dottið NEITT út meðan ég bloggaði þetta, hvílíkur munur að vera með actual TENGINGU í staðinn fyrir eitthvað helvítis skyggnisamband eins og þetta internet um breiðband var.)

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd