6. júní 2005

Firefox - hraðari ræsing!

Nokkrir hafa nefnt við mig að þeim finnist Firefox lengi að ræsast (og virtist ekki hafa skánað við að setja kvikindið á stera). En það er til ráð til að laga það í XP.
Maður þarf bara hægri smella á iconið sem maður notar til að ræsa Firefox, undir Shortcut flipanum þar er textabox sem heitir Target, bættu við /Prefetch:1 aftast í línuna.
Þegar þetta er búið þá ætti textinn í Target textaboxinu að vera svipaður þessu:
"C:\Program Files\Mozilla Firefox\firefox.exe" /Prefetch:1
Þetta gerir það að verkum að Windows XP notar snjalla prefetch fítusinn sinn til að ræsa Firefox örlítið hraðar (takk Bill).

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd