23. júní 2005

Rússar skjóta langdrægri flaug á sporbraut, BNA vita ekki hvar hún er

Svo ef ég skil þetta rétt, þá geta rússar skotið á loft langdrægri flaug sem var hönnuð til að bera kjarnavopn án þess að Bandaríkjamenn hafi glóru um hvar hún er stödd. Rússar hefðu semsagt getað sleppt því að skjóta þessu blessaða sólarseglskipi og skotið í staðinn langdrægu kjarnavopni á sporbraut? Síðan þegar þeir vildu gætu þeir sent boð til þess að skutla því inn úr sporbraut og gert kjarnorkuárás án þess að Bandaríkin hefðu af því nokkra einustu viðvörun (Bless bless Washington). Eins gott að kalda stríðið er búið, þetta hefði sent allt til fjandans.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd