29. júní 2005

Tengdu MSN messenger við gemsann

Núna er ég búinn að tengja MSN messenger við gemsann hjá mér og þetta virkar. Þegar ég er ekki á MSN þá fæ ég statusinn Mobile (gulur kall) og ef einhver sendir mér þá skilaboð þá berast þau sem SMS í gemsann minn.
Til að gera þetta virkt þarf að ganga í gegnum tvö ferli, fyrst að virkja SMS netfangið þitt ([simanumer]@sms.is) og svo þarftu að tengja MSN inn á SMS netfangið.
Ef þú ert hjá voðafón þá notarðu þessar stillingar til að virkja SMS netfangið þitt og ég geri ráð fyrir að þetta sé hægt á sambærilegan hátt hjá símanum.
Þegar þetta er búið þá er bara eftir að tengja messengerinn við [símanúmer]@sms.is. Það eru leiðbeiningar til þess þarna í Voðafóns stillingunum en þær eru aðeins out of date. Ég ætla þessvegna að nappa fínu skjámyndinni þeirra og útskýra aðeins betur.

1. Opnaðu MSN mobile síðuna (gæti krafist þess að þú loggir þig inn á passport)
2. Veldu "Other" sem Wireless service provider
3. Merktu í "My device has text messaging" tékkboxið
4. Sláðu inn [símanúmerið þitt]@sms.is í reitinn fyrir neðan.

Og þar með er þetta komið, bara eftir að hneppa á "Next" og samþykkja einhverja skilmála - MSN rukkar ekkert fyrir þessa þjónustu en það er ágætt að hafa það hugfast að ég held að maður borgi 7kr fyrir hvert sms sem berst manni í gegnum svona @sms.is netfang.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd