19. júní 2005

Tengdu sjónvarpið við þráðlausa netið


Ef ég ætti sjónvarp þá væri ég gríðarlega heitur fyrir þessari Philips Streamium SL400i græju.
Fyrir þá sem eru með þráðlaust net heima hjá sér en hafa ekki ennþá tengt tölvuna við sjónvarpið þá er þetta algjört monster apparat. Þú húkkar þessu bara við sjónvarpið og þetta spilar tónlist, bíómyndir og ljósmyndasafnið beint af hvaða tölvu sem er sem er tengd við þráðlausa netið.
Hún styður m.a. jpg, mp3, MPG2, MPG4, DivX 5, XviD.
En þetta er ekki allt því græjan tengist líka netinu (port 80) og getur streymt efni af því, aðgangur af glás af netvörpum, bíótreilerar, netleikir og fleira sem maður getur nálgast þar. (Held maður geti samt ekki vafrað) Svo eru líka einhverjir einfaldir leikir eins og Tetris innbyggðir í þetta líka. Græjan uppfærir sig svo sjálfkrafa.
Til að skoða þetta betur þá er hérna demó sem sýnir hvernig þetta virkar. (Demóið sýnir reyndar minni græjuna, SL300i en þetta virkar eins)
Svona græja ætti að vera komin í hendurnar á manni fyrir ~38þús gegnum Amazon og ShopUSA. Ef menn eru óþolinmóðir geta menn líka verslað þetta af Heimilistækjum

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd