22. júlí 2005

Flickr rammi

Flickr er frekar svalt apparat og flestir sem kannast við það. Fyrir þá sem gera það ekki þá eru margir sem nota þetta til að vista myndir á netinu til að geta sett þær í bloggið sitt (en ég er hrifnari af hello). Margir nota þetta líka fyrir fjölskyldumyndirnar sínar en þá þarf maður eiginlega að kaupa áskrift (ókeypis að uploada 20MB á mánuði minnir mig).
Ég er hinsvegar að prófa að nota þetta eins og nokkurskonar myndabookmarks, þ.e. þegar ég sé sniðuga mynd þá hendi ég henni í flickrinn minn og myndirnar birtast svo í nýja myndarammanum hér til hægri. Svolítið svipað og spurl.it nema fyrir myndir eiginlega - sjáum til hvort ég nenni að nota þetta af einhverju viti.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd