Nú er allt að gerast hjá góðvini okkar honum Gýgli. Hinn snilldarlegi Gmail er núna orðinn aðgengilegur á íslensku fyrir þá sem það vilja. Þetta finnst mér argasta snilld og mun ég nota þetta til að útbúa e-mail account handa mömmu, það er nokkuð ljóst. Til að virkja þetta opnar maður bara gmailið sitt og velur settings þarna ofarlega til hægri, í language stillingunni velur maður svo bara íslenskuna úr listanum - skýrir sig sjálft.Þýðingin er líka nokkuð vel gerð, "What's new!" verður t.d. að "Nýir fídusar!" í staðinn fyrir eitthvað steingelt eins og "Hvað er nýtt!". Það væri gaman að komast að því hver á heiðurinn af þessu. Google groups er komið með íslenskt viðmót líka.
Í dag opnaði svo Google nýju chat þjónustuna sína, talk - að sjálfsögðu ennþá í beta. Ég hef því miður ekki haft tíma til að tékka almennilega á þessu en ég mun koma með annað blogg um þetta seinna. Þetta er semsagt spjallforrit sem bíður líka upp á að tala saman fyrir þá sem hafa búnað í það og mun virka með ýmsum öðrum spjallforritum.
Svo má ekki gleyma nýju útgáfunni af google desktop search, en það er frekar áhugavert apparat, töluvert betra en leitin í Win og svo er hægt að hafa þetta svona sidebar sem maður á eftir að geta troðið öllum fjandanum inní. Nánar um það seinna líka.
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd