27. september 2005

Meiri hraði á netinu

Núna er Google Web Accelerator aftur fáanlegur hjá Google. Það eru einhverjir mánuðir síðan þeir komu með hann fyrst en vegna kvartana um hversu grófur hann væri á vefþjónum þá hættu þeir að dreifa honum.
En núna er hann semsagt kominn aftur. Ég var bara að sækja hann og hef þessvegna enga reynslu af þessu ennþá en ef ég er ekki í ruglinu þá virkar hann þannig að á meðan þú ert að skoða vefsíðu þá dundar hann sér við að sækja þær síður sem þú ert líklegastur að fara á næst og sparar þannig tíma. (Það er hægt að láta hann merkja hlekki í síður sem hann er búinn að sækja)
Eitt nice touch í þessu er svo að maður fær svona teljara í browserinn sinn (IE og Firefox) þar sem sagt er hvað apparatið hefur sparað manni mikinn tíma, sem leiðir til aukinnar velmegunartilfinningar fyrir tölvunörda eins og mig.
Athugið samt að þetta eikur umferðina því þetta sækir fullt af dóti sem þú skoðar síðan aldrei. Þetta getur verið sérstaklega varasamt fyrir þá sem eru með takmarkað erlent dowload geri ég ráð fyrir.

UPDATE: Núna er aftur búið að taka hann niður. Líklega hefur þessi opnun bara verið einhver mistök hjá Gýgli.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd