21. desember 2005

Rafpappírsrafbókalesarinn

Bráðum kemur á markaðinn ný tegund af græju. Nefnilega rafpappírs "spjald".
Þetta júnit er álíka stórt og A5 blað, þetta er með ágætis upplausn (1024) og með svo til endalausan contrast (rafpappír). Rafpappírinn er líkari pappír heldur en nokkur skjár, maður á að geta lesið af þessu úti í sólskini án vandræða, hins vegar er þetta auðvitað bara svarthvítt og með ekkert refresh rate (1 rammar á sec - svo þetta spilar ekki Doom). Innra minnið er frekar lítið eða aðeins rúm 200MB en það ætti ekki að koma að sök því þetta er með CF og SD raufum og líka WIFI. Þetta er græja sem er eins og sniðin til að lesa rafbækur og það er hlutur sem ég er búinn að bíða eftir því ég er búinn að sanka að mér rafbókum síðustu árin, frikkin þúsundir bóka - sem ég á aldrei eftir að lesa, en það fylgir því velmegunartilfinning að vita til þess að ég GÆTI það.

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd