Nokkrir brjálaðir heilasérfræðingar vildu skoða hvernig heilarnir í nokkrum helstu áhrifamönnum virkuðu svo þeir buðu Kofi Annan, Vladimir Putin og George W. Bush í "mat". Þegar þeir kumpánar mættu kampakátir í veisluna voru þeir snarlega rotaðir og heilasérfræðingarnir tóku til starfa.
Fyrst opnuðu þeir hausinn á Kofi Annan, þar var allt troðfullt af tölvukubbum og blikkandi ljósum. Enginn vísindamannanna hafði séð nokkuð þessu líkt en allt virtist fúnkera vel svo þeir ákváðu bara að loka Kofanum áður en þeir skemmdu eitthvað. Næst opnuðu þeir toppstykkið á Putin. Þar var hinsvegar allt fullt af tannhjólum, keðjum og stálfjöðrum. Aftur voru vísindamennirnir gáttaðir og vissu ekkert hvað þeir ættu að gera með þetta klukkuverk. En þetta snérist allt og virtist virka svo þeir settu lokið aftur á Putin.
Svo kíktu þeir ofan í hausinn á Bush og þá fyrst urðu þeir gáttaðir. Hann var gjörsamlega tómur nema hvað einn strengur lá í gegnum hausinn á milli eyrnanna. Nú hófust heitar umræður um hvernig þetta virkaði, einn hélt því fram að samkvæmt strengjafræðinni þá gæti rétt ofinn strengur sinnt óendanlega flóknum verkefnum. Annar hélt því fram að líklegast væri það tilgangur leiðtoga að vera samhljómur borgaranna og að tilgangur strengsins væri að titra eftir harmónískum hugsunum fólksins. En engum vísindamannanna bar saman um hver skýringin gæti verið svo þeir ákváðu að þeir þyrftu að skoða þennan streng nánar og byrjuðu á því að klippa á hann til að sjá hvað gerðist. Þá duttu eyrun af Bush.

Undur vísindanna
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd