28. október 2006
Firefox 2
Bara rétt að minna fólk á að Firefox 2 er tilbúinn og kominn í dreifingu. Það er svosem ekki mikil breyting frá firefox 1.5, aðallega breytingar sem maður tekur lítið eftir auk þess sem nokkrir hlutir sem maður þurfti extension fyrir áður eru nú hluti af vafranum (t.d. getur vafrinn núna munað alla flipana þína næst þegar þú ræsir hann og því ekki þörf á sessionsaver viðbótinni). Það er svo kannski þess virði að vara fólk við að eins og er þá virka ekki öll extension á 2.0 (Fasterfox virkar t.d. ekki ennþá). En annars er þetta bara tóm hamingja og rebbi er talsvert betri og skemmtilegri heldur en IE7 (sem ég neiðist til að nota í vinnunni).
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd