11. desember 2006
Jólin nálgast
Já, það er líklegast ekki um að villast, jólin eru að nálgast. Í gær var ég í laufabrauðsgerð, tók ofurlítið til hendinni í sameigninni hjá okkur sem við höfum verið að undirbúa fyrir málun undanfarið - svo skipti ég um blöndunartæki í sturtunni. Svo er bara eftir að endurraða hillum skápum og skrifborðinu inni í hjónaherberginu, setja upp fleiri skápa, rennur og tjöld, bæta einum skáp í eldhúsinnréttinguna - hreinsa allt innvolsið úr innbyggðu skápunum í barnaherberginu og setja auðvitað nýtt í staðinn, nýjar höldur á skápana og mála - nú síðan þarf að skipta um ofn í forstofunni, setja upp skóskáp, ljós og fleira - setja festingar í stigahandriðið úti, fyrir jólaseríurnar, mála pínulítið inni í stofu og festa gólflista og svo má ekki gleyma að laga hurðina á hjónaherberginu og laga ofninn í eldhúsinu, kaupa lista til að setja á milli parkets og flísa við stofuna og síðan þarf að leggja mósaíkflísar á baðherberginu, láta smíða spegla til að setja þar upp, fræsa, pússa og olíubera bekkjaplöturnar sem verða þar, sérsníða skápahurðirnar og plasta sárin - en fyrst þarf auðvitað að taka rafmagnið þar í gegn. En líklegast skiptum við ekki um gluggana í íbúðinni fyrr en eftir jól bara.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd