5. mars 2007

Ég losnaði við auðkennislykilinn!

Nýlega ákváðu bankarnir af sinni alkunnu manngæsku að þvinga upp á þjóðina nýju skaðræðisapparati til að gera mér lífið leitt. Þetta var þessi bévítans auðkennislykill sem öllum er ætlað að hafa á lyklakippunni sinni. (Persónulega hefði ég kosið að láta fólk bera hann á enninu...)

Nú er það þannig að ég held að ég hafi ekkert óvenjulega marga lykla á lyklakippunni. Á henni er eiginlega engin kippa heldur bara hringurinn, á honum hef ég svo húslyklana mína, bíllykil, dælulykil og svo USB lykil. Samt finnst mér kippan nógu fjandi fyrirferðamikil án þess að vera skikkaður til að bæta þessum óþarfa á hana að auki. Hann Enter orðaði þetta eiginlega best.

En hvað á maður að gera til að komast hjá því að burðast með þetta fjandans drasl? Það er hægt að fá sent auðkenni í gemsann, en það virkar ekki nema þrjá daga í einu eða álíka og þá hættir það auðvitað að virka einmitt þegar maður þarf á því að halda. Það er ekki eins og þetta sé þjónusta sem bankarnir eru að bjóða, fólk fær ekki að velja hvort það notar þetta, fólk er neytt til að nota þetta og á tímabili leit út fyrir að ég léti bugast. En þá kom trikkið.

Trikkið er auðvitað æðislega einfalt.

  • Maður byrjar á því að skrá niður fullt af númerum af lyklinum sínum (t.d. bara í textaskjal)
  • Þegar maður skráir sig næst inn í heimabankann opnar maður bara skjalið, kóperar fremsta númerið í röðinni og notar það við innskráninguna
  • Eftir að hafa notað númerið þá eyðir maður því úr skjalinu áður en maður vistar það
  • Skjalið geymi ég svo á usb lyklinum sem er hvort eð er á kippunni og er MUN minni en þetta auðkennisdrasl
Með þessari aðferð gætum við Hafrún meira að segja skráð númerin af báðum lyklunum okkar í sameiginlegt skjal í google docs. Þannig kemst ég í heimabankann hennar og hún í minn eins og við vorum vön. Að auki hentar google docs vel fyrir þá sem eru ekki eins miklir usb nördar og ég, því í gegnum það getur fólk haft aðgang að heimabankanum sínum hvar sem það er statt og þarf ekki að draga þennan djöful með sér hvert sem það fer. (Munið bara að skrifa hvergi lykilorðið og pin númerið ykkar niður)

0 ummæli:

Sendu inn athugasemd