Í þorpi einu birtist einu sinni kaupmaður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið. Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.Kaupmaðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma en hann skyldi aðstoðarmaðunn sinn eftir til að sjá um apana sem hann var búinn að kaupa.
Eftir að kaupmaðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja því apana á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum.
Síðan hefur ekkert spurst til kaupmannsins eða aðstoðarmannsins.
Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar.
0 ummæli:
Sendu inn athugasemd